Við bjóðum fyrirtækjum upp á þann möguleika að koma á staðinn og skoða bílaflotann. Einstaklega hentug þjónusta fyrir fyrirtæki sem hafa fjölda bifreiða að ráða, sem og þau fyrirtæki sem sjá hag sinn í að bjóða starfsmönnum upp á bifreiðaskoðun á vinnutíma og létta þannig á skyldum sem sinna þarf utan eða á vinnutíma.
Fullbúin færanleg skoðunarstöð – Við komum til þín!
Frábært tækifæri fyrir fyrirtæki
Ný færanleg skoðunarstöð fullbúin þeim tækjum sem þarf til að skoða bílinn þinn.
Hér fyrir neðan getur þú séð hvers konar bíla stöðin getur skoðað ásamt fleiri spurningum og svörum. Ef þú ert með frekari spurningar viljum við benda þér á að senda póst á [email protected]

Sendu okkur fyrirspurn!
Núverandi staðsetning
Næstu staðsetningar og dagssetningar
FAQ
Hvers vegna ætti ég að nýta mér þjónustuna?
Um er að ræða frábæra þjónustu við fyrirtæki sem reka margar bifreiðar. Við mætum á staðinn og skoðum allan bílaflotann, eða hluta af honum, allt eftir því hvað hentar þér best. Engin þörf fyrir að keyra hvern bíl í skoðun, eyða þar með dýrmætum tíma starfsmanna og vinnutækisins.
Hvað þarf ég að gera?
Panta þjónustuna fyrir hönd þíns fyrirtækis með því að senda tölvupóst á [email protected] eða fylla út umsóknarformið hér að neðan. Minnst 20 bíla þarf til að Aðalskoðun mæti á svæðið og framkvæmi skoðun.
Hver er lágmarksfjöldi bifreiða?
Tryggja þarf að um 20 bifreiðar nýti sér þjónustuna til að Aðalskoðun mæti á svæðið og framkvæmi skoðun á staðnum.
Hvernig er fyrirkomulagið?
Það eina sem starfsmenn gera er að koma með bílinn í upphaf vinnudags og sækja lyklana í lok dags, ekki seinna en kl. 16:30. Við sendum svo skoðunarskýrsluna með tölvupósti.