VANRÆKSLUGJALD

Hjá Aðalskoðun er vanrækslugjald innheimt. Samkvæmt umferðarlögum er vanrækslugjald, 20000 kr, lagt á þau ökutæki sem ekki hafa verið færð til aðalskoðunar eða endurskoðunar á réttum tíma.

Almenna reglan er sú að endastafur ökutækis segir til um skoðunarmánuð. Þannig á ökutæki með 1 í endastaf að skoðast í janúar en hefur frest í tvo mánuði að auki, þ.e. febrúar og mars. Því leggst vanrækslugjald á ökutæki með 1 í endastaf á 1. apríl.

Athugið að aðrar reglur gilda um fornbíla, bifhjól og ferðavagna.

Ef ökutæki með endurskoðun hefur ekki mætt til skoðunar innan endurskoðunarfrests líður mánuður áður en vanrækslugjald er lagt á. Ökutæki sem er fært til skoðunar í janúar og fær endurskoðunarfrest út febrúar fær því ekki vanrækslugjald fyrr en 1. apríl hafi það ekki verið skoðað innan frestsins.